Nýr kaldur pottur í Kópavogslaug

Probygg ehf. hefur lokið við uppsteypu á nýjum köldum potti í Kópavogslaug. Potturinn hefur nú verið tekinn í notkun og er ný viðbót við þá fjölbreyttu aðstöðu sem sundlaugargestum stendur til boða.

Probygg sá um uppsteypu pottsins og var framkvæmdin unnin með áherslu á gæði, nákvæmni og vönduð vinnubrögð.

Við hjá Probygg erum stolt af því að hafa komið að verkefninu og ánægð með lokaútkomuna. Við þökkum verkkaupa og samstarfsaðilum fyrir gott samstarf í gegnum framkvæmdina.

Við óskum Kópavogsbúum og öðrum sundlaugargestum til hamingju með nýju aðstöðuna.

Fleiri myndir af verkefninu má sjá undir „Fyrri verk“

Deila frétt