Fimm nýjar íbúðir fyrir Bjarg á Flúðum

Probygg ehf. hefur lokið við byggingu á nýjum íbúðum fyrir Bjarg íbúðafélag að Loðmundartanga 19 – 27 á Flúðum.

Um er að ræða raðhús með fimm nýjum leiguíbúðum. Íbúðirnar eru 93,4 – 95,6 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og alrými með eldhúsi. Pallur með skjólvegg á milli íbúða sem tengir skúr og hús (að framan). Við hverja íbúð er frístandandi úti hjólageymsla ásamt óupphitaðri útigeymslu.

Við uppbygginguna var lögð áhersla á vandaða framkvæmd, gæði og góðan frágang. Íbúðirnar voru jafnframt hannaðar með aðgengi og sjálfbærni að leiðarljósi.

Verkefnið er mikilvæg viðbót við íbúðauppbyggingu á Flúðum og eykur framboð á langtímaleiguhúsnæði fyrir fjölskyldur á svæðinu.

Við hjá Probygg erum stolt af því að hafa komið að verkefninu og þökkum Bjargi íbúðafélagi, samstarfsaðilum og okkar öfluga starfsfólki fyrir gott og farsælt samstarf.

Við óskum nýjum íbúum innilega til hamingju með nýju heimilin.

Deila frétt