Nýtt spennuhús á Flúðum fyrir RARIK

Probygg ehf. hefur lokið byggingu nýs spennuhúss á Flúðum fyrir RARIK. Mannvirkið er mikilvægur hluti af raforkuinnviðum svæðisins og liður í áframhaldandi uppbyggingu þeirra.

Verkið fól í sér jarðvinnu, steypuvirki, burðarvirki, klæðningar og fullnaðarfrágang mannvirkisins. Probygg sá þannig um framkvæmd verksins frá upphafi til loka.

Verkefnið var unnið samkvæmt ströngum kröfum sem gerðar eru til orkumannvirkja, með ríka áherslu á gæði, öryggi og vandaða verkstjórn í öllum verkþáttum. Stoð verkfræðistofa annaðist hönnunarstjórn og verkfræðihönnun verkefnisins og Magnús Freyr hjá Gagn ehf. sá um arkitektahönnun og gerð aðaluppdrátta.

Við hönnun mannvirkisins var jafnframt lögð áhersla á að það félli vel að staðháttum og umhverfi sínu. Hönnun þess sækir innblástur í íslenskan byggingararf og landslag.

Við hjá Probygg erum stolt af lokaútkomunni og ánægð með að hafa komið að uppbyggingu mikilvægra raforkuinnviða á svæðinu.

Við þökkum RARIK, hönnuðum, samstarfsaðilum og okkar öfluga starfsfólki fyrir gott og farsælt samstarf í gegnum verkefnið.

Deila frétt